Banaslys við höfnina á Hvammstanga
Ökumaður bifreiðar, 55 ára karlmaður, lést þegar bíll hans fór í höfnina á Hvammstanga á fimmta tímanum síðdegis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra.
Fram kemur að allir viðbragðsaðilar hafi verið kallaðir út eftir að tilkynning barst um að bíl hefði verið ekið í höfnina og að það hafi verið kafari frá Brunavörnum Húnaþings vestra sem hafi fundið bifreiðina um 30 metra frá bryggjunni um klukkan 17. Enn fremur aðstoðuðu kafarar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en þeir voru fluttir á staðinn með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Maðurinn var einn í bílnum. Ekki er unnt að greina frá nafni hans að svo stöddu.
Lögreglan á Norðurlandi vestra annast rannsókn málsins.