Bangsadagur í Varmahlíð
feykir.is
Skagafjörður
31.10.2011
kl. 08.25
Haldið var upp á bangsadaginn í Varmahlíðarskóla miðvikudaginn 26. Október en þá komu margir bangsar (og ýmis önnur kvikindi) og eigendur þeirra í heimsókn á bókasafnið.
Þar tóku nemendur 5., 6. og 7. bekkjar á móti yngstu nemendunum og lásu fyrir þá bangsasögur. Nokkrar myndir voru teknar sem hægt er að nálgast HÉR.