Baráttan um Norðurland
Það verður væntanlega hart tekist á í kvöld þegar fram fer á Sauðárkróksvelli sannkallaður risa derbíslagur í 2. deildinni í knattspyrnu. Þá leiða saman gæðinga sína sameiginleg lið Tindastóls og Hvatar annas vegar og lið KF hins vegar, en það er sameinað lið þeirra Tröllaskagapilta frá Siglufirði og Ólafsfirði.
Leikurinn hefst kl. 20:00 og mikið í húfi fyrir bæði lið sem eru á svipuðum slóðum um miðja 2. deildina. Það er sem fyrr frítt á völlinn og eru stuðningsmenn Tindastóls/Hvatar hvattir til að fjölmenna á völlinn og styðja Donnadrengina til sigurs.
Á hinni ágætu netsjónvarpsstöð TindastóllTV má sjá ágætt kynningarmyndband vegna leiksins í kvöld. Koma svo!
http://www.youtube.com/watch?v=RN7ua0mz0V8