Baráttusigur gegn Völsurum
Það kom að því að Tindastóll landaði sigri í Iceland Express-deildinni en útlendingahersveit Valsmanna gaf sig ekki fyrr en á síðustu mínútu þegar villusöfnun kom í bakið á rauðliðum. Heimamenn voru þó yfir nánast allan leikinn, Valsmenn höfðu forystu þegar tvær mínútur voru liðnar af leiknum og þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum en Tindastólsmenn börðust vel síðustu mínúturnar og innbirtu tvö fyrstu stig sín í vetur. Lokatölur 89-82.
Bæði lið voru án sigurs fyrir leikinn. Valsmenn komust yfir í byrjun leiks en fljótlega náðu heimamenn forystu og höfðu þeir sex stiga forystu að loknum fyrsta leikhluta. Stólarnir gerðu síðan 5 fyrstu stigin í öðrum leikhluta og juku muninn smá saman og náðu 13 stiga forystu og héldu henni í nokkurn tíma. Í kjölfar þess að Stólarnir tóku leikhlé náðu Valsmenn að hressa upp á sinn leik og minnkuðu muninn úr 37-24 í 37-31. Munurinn á liðunum var síðan þetta 3 til 9 stig fram að hléi en þá var 5 stiga munur á liðunum, Stólarnir yfir 46-41 eftir að Maurice Miller, sem leikið hafði vel í fyrri hálfleik, þaut yfir völlinn endilangan og lagði boltann í körfu Valsmanna um leið og flautan gall.
Spennan fór að segja aðeins til sín í þriðja leikhluta þar sem bæði lið gerðu sig sek um klaufaleg mistök í sókninni. Tindastólsmenn héldu forskotinu í kringum 6 stigin en tókst aldrei að hrista Valsmenn af sér. Valsmenn áttu síðasta orðið í leikhlutanum þegar Hamid Dicko gerði ágæta körfu eftir mikla baráttu undir körfu Tindastóls. Staðan 66-59. Valsmenn hófu fjórða leikhluta með 2ja stiga körfu en Þröstur Leó, sem fram að þeim tímapunkti hafði klikkað á öllum 6 skotum sínum í leiknum, plammaði niður þrist af miklu öryggi í kjölfarið og munurinn átta stig og í kjölfarið setti Trey Hampton niður tvö víti en kappinn var bara bísna öruggur í vítaskotunum í kvöld og munaði um minna. En Valsarar gáfust ekki upp og gerðu næstu 6 stig og staðan 71-67. Maurice Miller gekk illa að láta sóknir Stólanna ganga sem skildi á þessum kafla og reyndi að hnoðast gegnum vörn Vals með litlum árangri. Leikurinn var spennandi og enn náðu Valsarar að minnka muninn, staðan varð 74-72 og síðan 74-74 og svo komust þeir yfir 77-78. Helgi Margeirs reyndi á þessum kafla ítrekað að setja niður þrista en án árangurs en að sjálfsögðu á kappinn að skjóta ef hann er í færi, þessir boltar fara bara niður næst. Þegar á reynir stígur Helgi Rafn upp, kappinn gerði næstu 4 stig og síðan fékk Igor Tratnik sína fimmtu villu fyrir brot á Helga og þá var mesti krafturinn úr gestunum og heimamenn náðu að landa mikilvægum sigri. Lokatölur 89-82.
Í kvöld skipti mestu máli að landa þeim tveimur stigum sem í boði voru og byggja á þeim í framhaldinu. Leikurinn var ekki góður og bæði lið gerðu mikið af mistökum. En sigurinn var sanngjarn og kærkominn. Miller átti í heildina góðan leik, gerði 21 stig og lét boltann ganga betur en oft áður. Þá var Trey Hampton ágætur og var með 69% vítanýtingu sem er gott á þeim bænum. Þá var Rikki seigur, gerði nokkrar fínar gegnumbrotskörfur og var öryggið uppmálað á vítalínunni. Hittni liðanna í 3ja stiga skotum var ekki merkileg, um 25%, en vítanýting var til fyrirmyndar, Stólarnir settu niður 25 af 31 vítaskoti sínu og en Valsmenn gerðu sér lítið fyrir og settu niður öll 15 skot sín. Valsmenn fengu hins vegar mun fleiri villur en Stólarnir, 25, en Stólarnir 13.
Stig Tindastóls: Maurice Miller 21, Trey Hampton 21, Rikki 20, Helgi Rafn 10, Svabbi 8, Helgi Margeirs 6 og Þröstur Leó 3.