Baráttusigur í Lengjubikarnum

Tindastóll Hvöt vann baráttusigur á KF í Lengjubikarnum um helgina en eftir slakan fyrri hálfleik þar sem okkar menn voru undir 0 – 2 komu strákarnir dýrvitlausir til leiks í síðari hálfleik og voru lokatölur leiksins 4 – 2 fyrir Tindastól Hvöt.

Á heimasíðu Tindastóls er skrifað um leikinn; „Fyrri hálfleikur okkar manna var afskaplega slakur, líkast til einn sá slakasti hálfleikur sem sést hefur hjá liðinu í vetur. Hinsvegar voru leikmenn KF býsna sprækir þó aldurinn hafi færst yfir nokkra þeirra en mikil reynsla er innan þeirra raða og þeir voru mun betri aðilinn fyrstu 45 mínúturnar. Þeir skoruðu tvö mörk á fyrstu 15 mínútum leiksins og þannig var staðan í hálfleik.

Eitthvað hefur Sigurður Halldórsson þjálfari sagt við leikmenn í hálfleik því annað lið með annað hugarfar kom inná völlinn. Af öllum ólöstuðum þá gjörbreytti Atli Arnarson gangi leiksins. Hann var ekki búinn að vera lengi inná þegar hann skoraði laglegt mark eftir gott einstaklingsframtak og þetta kveikti í okkar mönnum þannig að ekki var aftur snúið. Kolbeinn Kárason skotaði næsta mark og jafnaði leikinn og það var svo Árni Einar Adolfsson sem skotaði með föstu skoti upp í þaknetið af stuttu færi og kom okkur í 3-2. Kolbeinn var ekki hættur og skoraði fjórða markið og þar við sat.

Góður sigur á sterku liði KF. Gaman að sjá liðið koma svona sterkt til baka eftir afar slappan fyrri hálfleik. Siggi skipti mörgum leikmönnum inná sem komu gríðarlega frískir inn og stóðu sig mjög vel.“

Hægt er að sjá mynband af leiknum hérna:

Fleiri fréttir