Bárður hættir sem þjálfari
Stjórn körfuknattleiksdeildar (kkd.) Tindastóls vill koma eftirfarandi á framfæri: Bárður Eyþórsson hefur tekið þá ákvörðun að framlengja ekki samning sinn við kkd Tindastóls, sem renna mun út að loknu tímabilinu.
Harmar stjórn kkd. þessa ákvörðun Bárðar, enda var aldrei í huga stjórnar annað en að framlengja við Bárð. En stjórn kkd. vill að það komi fram að engin óánægja er á milli þjálfarans og stjórnar, er þetta alfarið ákvörðum Bárðar. Bárður mun klára þetta tímabil með meistaraflokki, unglingaflokki, drengjaflokki og 11. flokki eins og samningur segir til um og verðum við bara að virða þessa ákvörðun hans. Stjórn kkd. er mjög ánægð með störf Bárðar og þykir leitt að sú samvinna sé að verða á enda komin. Það eru fjórir leikir eftir í fyrstu deildinni og klára verður þá með sæmd og koma liðinu upp á meðal þeirra bestu aftur, þar sem við eigum klárlega heima.
Fh. Körfuknattleiksdeildar Tindastóls, Stefán Jónsson formaður.