Bárður ráðinn körfuboltaskólastjóri

Bárður Eyþórsson hefur tekið að sér að stýra körfuboltaskóla Tindastóls og míkróboltaæfingum á sunnudögum í vetur. Samkvæmt Tindastóll.is hefst starfsemin hjá báðum deildum nk. sunnudag.

 

Míkróboltinn verður með æfingar fyrst um sinn á sunnudögum kl. 10.10 - 11.00 í íþróttahúsinu við Árskóla. Falli æfingar niður þar verða þær fluttar í barnaskólasalinn. Fyrsta æfingin er því á sunnudaginn kemur kl. 10.10. Þjálfari verður Bárður Eyþórsson.

Körfuboltaskólinn hefur nú starfsemi sína eftir allnokkra bið í haust. Hann stendur eins og áður fyrir opnum kennslustundum fyrir iðkendur yngri flokkanna a sunnudögum, þegar engin mót eru í íþróttahúsinu.

Bárður Eyþórsson hefur verið ráðinn skólastjóri og hefjast kennslustundir á sunnudaginn kemur. Tímasetningar og aldursskiptingar körfuboltaskólans verða eftirfarandi:

Kl. 11.00 - 11.50      3. - 5. bekkur stúlkur og 3. - 6. bekkur drengir.
Kl. 11.50 - 13.10      6. bekkur og eldri stúlkur og 7. bekkur og eldri drengir

Fleiri fréttir