Barokkhátíð á Hólum

Barokkhátíð Barokksmiðju Hólastiftis verður haldin á Hólum í Hjaltadal í þriðja sinn dagana 23.-26. júní 2011. Þar mun verða lífleg dagskrá m.a. tónlist, dans, fræðsla, skemmtun, barokkmessa og hátíðartónleikar.  Námskeiðið hefst kl. 10 fimmtudaginn 23. júní og lýkur með lokatónleikum sunnudaginn 26. júní kl. 14:00.

Á námskeiðinu verður m.a. söngnámskeið undir stjórn Mörtu Guðrúnar Halldórsdóttur og dansnámskeið undir leiðsögn Ingibjargar Björnsdóttur þar sem kenndir verða dansar frá barokktímabilinu.  Fræðslu  og fyrirlestra halda m.a. Þóra Kristjánsdóttir, Hjörleifur Arnar Jónsson, Eyþór Ingi Jónsson og Michael Jón Clarke.  Einnig verða í boði hádegistónleikar í umsjón þekktra tónlistamanna.

Verkefnið er styrkt af Menningarráði NV og er ókeypis á námskeiðið en þátttakendur greiða sjálfir fyrir mat og gistingu á Hólum. Áhugasamir skrá þátttöku í netfanginu barokksmidjan@holar.is eða guttikristin@simnet.is .

Allir eru velkomnir!

Fleiri fréttir