Barokkhátíðin á Hólum hefst í dag

Barokkhátíðin á Hólum hefst í dag og stendur yfir fram á sunnudag, 27. - 30. júní. Á hátíðinni verður mikið um söng, tónlist, fræðslu, dans og gleði.

Dagskrá hátíðarinnar:

Fimmtudagurinn 27. júní

Kl. 12:30 Hádegistónleikar í Hóladómkirkju. Barokkaríur.

Kl. 15:30 Fræðsluerindi í Auðunarstofu. Strengjaorgelævintýrið.

Umsjón Eyþór Ingi Jónsson og Pétur Halldórsson.

Kl. 20:00 Vígslutónleikar í Hóladómkirkju.

Umsjón: Lars og Maria S. Jöstedt. Vígt nýtt hljóðfæri Barokksmiðjunnar, Guarracino-viginall.

 

Föstudagurinn 28. júní

Kl. 12:30 Hádegistónleikar í Hóladómkirkju.

Umsjón: Julia Tamminen orgelleikari.

Kl. 15:30 Söngtónleikar í Hóladómkirkju.

Nemendur á söngnámskeiði Jóns Þorsteinssonar koma fram.

Kl.20:00 Söngtónleikar í Hóladómkirkju.

Nemendur á söngnámskeiði Jóns Þorsteinssonar koma fram.

Kl. 21:30 Barokk-quiz í Auðunarstofu. Hver veit mest um barokkið?

 

Laugardagurinn 29. júní

Kl. 12:30 Hádegistónleikar í Hóladómkirkju. Matreitt á staðnum.

Kl. 14:30 Fyrirlestur í Auðunarstofu.

Sálmahandrit og hannyrðir kvenna á Hólum og í Gröf. Margrét Eggertsdóttir bókmenntarfræðingur á Árnastofnun, talar um tengsl og samspil handrita og prentaðra bóka á Hólum.

Kl. 17:00 Tónleikar í Hóladómkirkju. Affetti cantabile – Litbrigði í ítölsku barokki.

Finnski kvartettinn Un´altra ondata leikur verk eftir Tarquinio Merula, Dario Castello, Biagio Manni, Giovanni Pablo Cima, Giovanni Battista Bassani, Marco Uccelini og Salomone Rossi.

Kl. 19:00 Barokkkvöldverður í sal Hólaskóla. Gamanmál, tónlist, leiklist, söngur og fl.

Dreift verður nótum að léttum barokksöngögum og æft saman. Hljómsveit hátíðarinnar leikur fyrir barokkdansi. Veislustjórar: Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson. Verð fyrir kvöldverðinn: 5.440 kr. Skráning í Hólaskóla.

 

Sunnudagurinn 30. júní

Kl. 11:00 Hátíðarmessa í Hóladómkirkju. Séra Magnús Magnússon og listafólk af hátíðinni sér um tónlistarflutning.

Kl. 14:00 Hátíðartónleikar í Hóladómkirkju. Hljómsveit hátíðarinnar leikur verk sem æfð hafa verið á meðan hátíðinni hefur staðið.

Einnig má búast við einleikara og smærri hljóðfærahópar komi fram og þá syngur einnig með hljómsveitinni hollenski baritónsöngvarinn Christof Laceulle.

 

Námskeið

Eyþór Ingi Jónsson orgelleikari heldur námskeið fyrir hljómborðsleikara á Akureyri dagana fyrir Barokkhátíð æa Hólum 2013. Tilefnið er auðvitað koma nýja hljóðfærisins.

Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari leiðbeinir líka ungum strengjaleikurum á Akureyri áður en hátíðin hefst. Barokksmiðjan býr í haginn fyrir framtíðina með því að vekja áhuga ungs folks á barokktónlist.

Ingibjörg Björnsdóttir hefur kennt barokkdans á Barokkhátíð á Hólu frá upphafi sumarið 2009. Ingibjörg er frábær kennari og elskuleg í alla staði. Námskeiðið er öllum opið og fólk getur valið sér léttari dansa og meira krefjandi eftir áhuga og getu.

Nánari upplýsingar á www.barokksmidjan.com

Fleiri fréttir