Batnandi rekstrarniðurstaða Húnaþings vestra
Á fundi Sveitarstjórnar Húnaþings vestra í síðustu viku var lögð fram tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2012. Tillagan er að hluta til byggð á ákvörðunum sem sveitarstjórn hefur tekið á fundum sínum tímabilið 8. mars til 22. ágúst 2012. Rekstrargjöld aðalsjóðs hækka um kr. 12.225.000, en rekstrarniðurstaða A og B hluta batnar um kr. 8.675.000.
Rekstrargjöld aðalsjóðs skiptist niður á eftirfarandi málaflokka:
- Félagsþjónusta kr. 1.400.000
- Menningarmál kr. 425.000
- Æskulýðs- og íþróttamál kr. 400.000
- Umferðar og samgöngumál kr. 2.200.000
- Atvinnumál kr. 1.400.000
- Sameiginlegur kostnaður kr. 6.400.000.
Í fundargerð er nánari sundurliðun og skýringar en þar stendur að rekstrargjöld eignasjóðs hækka um kr. 2.000.000, rekstrargjöld vatnsveitu hækka um kr. 1.500.000 og rekstrargjöld hitaveitu hækka um kr. 400.000. Rekstrargjöld A og B hluta hækka því um kr. 16.125.000. Framlög Jöfnunarsjóðs hækka um kr. 5.400.000 og fjármagnstekjur aðalsjóðs hækka um kr. 19.400.000 sem er að stærstum hluta vegna afskrifta Landsbankans á láni vegna stofnfjárbréfa.
Heildartekjur hækka því um kr. 24.800.000 Rekstrarniðurstaða A og B hluta batnar því um kr. 8.675.000 og verður að teknu tilliti til afskrifta kr. 18.584.000. Til fjárfestinga er varið kr. 590.000 hjá aðalsjóð, kr. 1.100.000 hjá eignasjóði og kr. 800.000 hjá vatnsveitu eða samtals til fjárfestingar kr. 2.490.000.