Bátur strandaði í Sauðárkrókshöfn

Sauðárkrókur. Mynd/BÞ
Sauðárkrókur. Mynd/BÞ

Bát­ur strandaði í höfn­inni á Sauðár­króki í fyrrakvöld. Samkvæmt frétt mbl.is var bát­ur­inn að koma inn eft­ir veiði þegar hann fékk gat á skrokk­inn fyr­ir neðan sjó­línu með þeim af­leiðing­um að sjór flæddi inn í véla­rúmið.

Mbl.is hefur það eftir lög­regl­unn­i á Sauðár­króki að skipstjórinn sigldi beint upp í fjöru inn­an hafnam­inn­is­ins til að bjarga bátn­um og strandaði hon­um þar. Að því loknu tóku við aðgerðir til að ná bát­in­um á þurrt.  Lög­regla segir eng­um hafa orðið meint af.

Rann­sókn­ar­nefnd sjó­slysa mun taka við mál­inu þegar lög­regla hef­ur af­hent sína skýrslu.

Fleiri fréttir