Bein útsending frá fundi sveitarstjórnar

Boðið er uppá nýjung að geta hlustað á fundi Sveitarstjórnar Skagafjarðar í beinni útsendingu á heimasíðu sveitarfélagsins. Sú nýjung mun hefja göngu sína frá og með fundinum í dag, sem hefst kl. 16:15 í Safnahúsinu við Faxatorg.

Hnappur hefur verið settur upp á heimasíðu sveitarfélagsins en á sömu síðu er einnig hægt að hlusta á hljóðupptökur frá fyrri fundum.

Í dag verður farið yfir fundargerðir hinna ýmsu nefnda og stjórna, bæði til kynningar og staðfestingar. Einnig verður fjárhagsáætlun ársins 2011 endurskoðuð. Hér má sjá nánari upplýsingar um dagskrá.

Fleiri fréttir