Bifhjólaslys í Gyltuskarði

Bifhjólaslys varð í Gyltuskarði í Skagafirði laust fyrir hádegi í dag. Að sögn lögreglunnar á Norðurlandi vestra var ökumaður hjólsins staddur þar ásamt 30 manna hóp á krossurum þegar hann féll af hjóli sínu og viðbeinsbrotnaði.  

Gyltuskarð er á Háheiði, milli Varmahlíðar og Sauðarkróks, milli Gyltu og Stakkfells. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn sóttur af björgunarsveitarmönnum og sjúkrabíl og fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir