Bikardraumurinn brast í Víkinni

Það er mest allt á brattann hjá Tindastólsmönnum þessa dagana. Í fyrrakvöld léku kapparnir við lið Reykjavíkur-Víkinga í Víkinni í Reykjavík en um var að ræða leik í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins. Stólarnir máttu þola 2-1 tap og geta því hætt að láta sig dreyma um bikarinn.

Víkingar komu sem óðir væru til leiks og Aron Elís Þrándarson negldi í slána og inn með bylmingsskoti strax á 2. mínútu. Áður en Stólarnir náðu áttum eftir þessi herlegheit heimamanna höfðu Víkingarnir nælt sér í vítaspyrnu og henni skilaði íþróttafréttamaðurinn Hjörtur Júlíus Hjartarson af öryggi í mark Tindastóls og aðeins 8 mínútur liðnar. Miðað við yfirburðina í byrjun leiks voru menn jafnvel farnir að reikna með tahítískum lokatölum en Stólarnir þéttu raðirnar og komu sér inn í leikinn á ný með laglegu marki frá Christopher Tsonis á 22. mínútu.

Víkingar voru klárlega sterkari aðilinn í leiknum en Tindastólsmenn gerðu hvað þeir gátu til að jafna leikinn. Tsonis var vísað af velli eftir klafs við Víkinginn Taskovic og síðustu mínútur leiksins urðu gestirnir skiljanlega að taka áhættu og fækka í vörninni ef þeir ætluðu að ná að jafna. Fyrir vikið fengu Víkingar ágæt færi til að bæta við mörkum en allt kom fyrir ekki og lokatölur 2-1.

Að mati blaðamanns Fótbolta.nets voru Hjörtur Hjartarson og Aron Elís Þrándarson sprækastir Víkinga en Atli Arnarson og Elvar Páll Sigurðsson voru bestir hjá Stólunum. Feykir treystir því að þetta sé rétt.

Fleiri fréttir