Bílaþvottur til styrktar körfuknattleiksdeidinni

Næstkomandi laugardag 26. febrúar ætlar körfuknattleiksdeild Tindastóls að taka að sér að tjöru- og sápuþvo bíla Skagfirðinga og og nærsveitunga og byrjar þvotturinn stundvíslega kl. 12:00. Það eina sem þú þarft að gera er að koma með bílinn í Kjarnann. Hægt er að panta fyrirfram fyrir bílinn í síma 8227729.

Verð fyrir fólksbíl er kr. 5.500 og fyrir jeppa kr. 7.500. Körfuknattleiksdeildin mun einnig taka við flöskum og dósum í Kjarnanum þennan sama dag frá kl. 12:00-18:00.

Um kvöldið verður svo konukvöld á Mælifelli til styrktar körfuknattleiksdeildinni þar sem allar konur mæta að sjálfsögðu á hreinum bíl.

Fleiri fréttir