Bilun í dælumótór í Reykjarhóli

Búast má við truflunum á rennsli á heitu vatni í Varmahlíð og víðar í Skagafirði í dag. Mynd: KSE.
Búast má við truflunum á rennsli á heitu vatni í Varmahlíð og víðar í Skagafirði í dag. Mynd: KSE.

Vegna bilunar í dælumótor í Reykjarhóli munu Skagafjarðarveitur þurfa að loka fyrir heita vatnið á veitusvæði Varmahlíðarveitu eftir hádegi  í dag. Búast má við truflunum á rennsli í Varmahlíð og sunnan Varmahlíðar að Krithóli,  Blönduhlíð, Langholti og Staðarsveit, Sæmundarhlíð, Hegranesi og Hofstaðaplássi.

Viðgerð hefst kl. 13:00 og mun standa fram eftir degi. Í tilkynningu frá Skagafjarðarveitum er beðist velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Fleiri fréttir