Bingó í kvöld - skyldumæting
Í kvöld 13. apríl verður haldið páskabingó á vegum 10. bekkjar Árskóla á Sauðárkróki en bingóið er liður í fjáröflun krakkanna fyrir Danmerkurferðina í vor. Bingóið verður haldið í stofum A6-8 í húsnæði skólans við Skagfirðingabraut og hefst klukkan 20:00.
Spjaldið kostar 500 krónur og einnig verður starfrækt sjoppa á staðnum. Glæsilegir og gagnlegir vinningar að vanda, s.s. páskaegg, segir í tilkynningu frá 10. bekkingum sem vona að sem flestir sjái sér fært að mæta og styðja gott málefni.