Bíó á Hvammstanga

Selasetrið hefur tekið í notkun nýjan bíósal og ráðstefnusal með fullkomnum bíóskjávarpa og tjaldi og vill með því leggja sitt að mörkum til að stuðla að bættum afþreyingarkostum svæðisins með því að bjóða sveitungum uppá þann möguleika að geta farið í bíó. Það er myndin JÓN OG SÉRA JÓN sem fær þann heiður að verða sú fyrsta sem tekin verður til sýningar á morgun sunnudaginn 11. des. en áætlaðar eru tvær sýningar kl. 14 og 16.  

 

Selasetrið fékk góðan stuðning hjá KVH til kaupa á bíóskjávarpanum en vonast er til þess að þetta framtak eigi eftir að hljóta góðar undirtektir og vera sveitungum til gagns og gamans.

Fleiri fréttir