Birgðir við upphaf sláturtíðar mun minni en í fyrra
Birgðir af kindakjöti síðasta árs þann 1. september 2017 voru 1.063 tonn, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landsambandi sauðfjárbænda. Á sama tíma í fyrra voru brigðirnar 1.262 tonn. Birgðir við upphaf sláturtíðar eru því 16,6% minni á en í fyrra. Frá þessum birgðum munu dragast 500 til 600 tonn áður en nýtt kjöt kemur að fullu á markað en sala á innanlandsmarkaði er um 560 tonn á mánuði að meðaltali. Umframbirgðir af kjöti frá sláturtíðinni haustið 2016 verða því um 500 tonn þegar upp er staðið eða rétt tæplega eins mánaðar sala. Þessar birgðir eru um 5% af heildarframleiðslunni sem eru um 10 þúsund tonn.
Erfiðar ytri aðstæður
Undanfarinn misseri hefur íslensk sauðfjárrækt tekist á við lokun Noregsmarkaðar, afleiðingar Úkraínudeilunnar, tæknilega lokun Rússlandsmarkaðar, fall breska pundsins vegna Brexit og hátt gengi íslensku krónunnar. Áætlað er að markaðir fyrir 1.500 til 2.000 tonn af kjöti hafi lokast eða laskast verulega.
Markaðsstarf skilar aukinni sölu innanlands
Sala innanlands jókst í fyrra um 331 tonn eða 5,2% Fyrstu átta mánuði þessa árs jókst innanlandssalan um 369 tonn eða 9,6%. Samanlögð aukning á sölu innanlands er því um 700 tonn frá ársbyrjun 2016. Helstu ástæður þessa er markaðssetning gagnvart erlendum ferðamönnum með samstarfi við um 100 veitingastaði og öflugri herferð á samfélagsmiðlum.
Sérstakt markaðsátak hefur skilað árangri
Aðgerðir sem gripið var til síðasta vetur í tengslum við sérstakt markaðsátak sem Alþingi lagði 100 milljóna króna aukafjárveitingu inn í hafa skilað sölu upp á um 850 tonn. Að auki hefur samstarfsverkefni í Japan skilað sér í um 170 tonna sölu og útlit er fyrir metár í sölu til Bandaríkjanna.
Áfram ástæða til aðgerða
Samanlagt nemur aukin innanlandssala, Japansverkefnið og sérstaka átaksverkefnið um 1.720 tonnum Þannig hefur því tekist með samstilltum aðgerðum að forða því að hér myndist verra ástand. Þrátt fyrir góðan árangur af markaðsstarfi og sérstökum aðgerðum sem gripið var til vegna erfiðra utanaðkomandi aðstæðna þarf enn að gera betur. Breska pundið er enn lágt, Rússlands- og Noregsmarkaðir enn lokaðir og gengi krónunnar enn hátt.
Því er nauðsynlegt að halda áfram því árangursríka starfi sem unnið hefur verið á undanförnum misserum í samvinnu bænda, afurðastöðva, stjórnvalda og Icelandic lamb, segir í tilkynningunni.