Birna og Helga munu berjast um titilinn
Iceland Express-deild kvenna fer af stað í kvöld. Ekki er Tindastóll með kvennalið, hvorki í efstu deild né þeirri fyrstu. Þó er gaman að segja frá því að gallharðir Króksarar og fyrrum leikmenn Tindastóls, þær Helga Einarsdóttir í KR og Birna Valgarðsdóttir í Keflavík, eru fyrirliðar sinna liða í Iceland Express-deildinni.
Og það er einmitt spá forráðamann, þjálfara og fyrirliða í Iceland Express-deild kvenna að Keflavík og KR muni berjast um sigurinn í deildinni en Keflvíkingum er þó spáð sigri.
Spáin er á þessa leið:
1. Keflavík 166
2. KR 163
3.-4. Haukar 135
3.-4. Valur 135
5. Snæfell 90
6. UMFN 84
7. Hamar 54
8. Fjölnir 37
Það er kannski rétt að geta þess að Helga er annar tveggja fyrirliða KR en Margrét Kara Sturludóttir fer ásamt Helgu fyrir liði Vesturbæinga.