Bjarni Jónasson sigraði KS deildina

Lokakvöld KS deildarinnar var haldið 7. apríl síðastliðinn og var þá keppt í smala og skeiði  og og réðust úrslit í heildarstigakeppninni. Bjarni Jónasson sigraði KS deildina 2010.

Í smalanum var það smalakóngurinn Magnús Bragi Magnússon sem sigraði og er þetta ekki í fyrsta skipti sem hann vinnur glæsta sigra í smalakeppnum. Í skeiðinu sigraði Bjarni Jónasson eftir harða keppni við Tryggva Björnsson en þeir félagar þeyttust í gegnum höllinna á sama tíma 5,10 sek. sem er mjög góður tími, en Bjarni vann sökum þess að tími hans úr hinum sprettinum var betri en Tryggva. Með sigrinum í skeiðinu gulltryggði Bjarni sér sigur í KS-deildinni þetta árið.

Eyþór Jónasson einn aðstandenda keppninnar segir að styrkleiki á keppninni í ár hafi sennilega verið sá mesti frá upphafi deildarinnar og eflaust eigum við eftir að sjá marga af þeim hestum og knöpum sem mest kvað að í KS-deildinni í vetur standa ofarlega á komandi landsmóti í Skagafirði í sumar.

Úrslit úr smala HÉR

og skeiði má sjá HÉR

Hér fyrir neðan eru heildarúrslit í KS-deildinni 2010. Tólf efstu knapar hafa unnið sér þáttökurétt á næsta ári.

 Stigasöfnun

 Knapar Heild.stig

  • 1 Bjarni Jónasson  34  
  • 2 Þórarinn Eymundsson  27,5  
  • 3 Ólafur Magnússon  24  
  • 4 Magnús Bragi Magnússon  21,5
  •  
  • 5 Elvar E. Einarsson  21,5  
  • 6 Mette Mannseth  21,5  
  • 7 Ísólfur Líndal Þórisson  20,5  
  • 8 Sölvi Sigurðarson  16,5
  •  
  • 9 Erlingur Ingvarsson  13  
  • 10 Þorsteinn Björnsson  10,5  
  • 11 Tryggvi Björnsson  8  
  • 12 Ragnar Stefánsson  6
  •  
  • 13 Heiðrún Ósk Eymundsdóttir  2,5  
  • 14 Líney María Hjálmarsdóttir  2  
  • 15 Þorbjörn H. Matthíasson  2  
  • 16 Riikka Anniina  0
  •  
  • 17 Viðar Bragason  0  
  • 18 Björn Fr. Jónsson  0

Eftirfarandi myndir tók Sveinn Brynjar Pálmason.

.

Fleiri fréttir