Björgunarsveitarmenn í sjónum í 40 mínútur
Tveir björgunarsveitarmenn komust í hann krappann í Miðfirði upp úr hádegi í gær þegar þeir gleymdust í sjónum í um 40 mínútur. Þeir tóku þátt í sýningu ásamt fleiri björgunarsveitarmönnum á Hvammstanga í tilefni af sjómannadeginum.
Björgunarsveitarmennirnir voru á gúmmí- og fiskveiðibátum að sýna hvernig mönnum er bjargað úr sjónum. Þegar sýningu var lokið var farið í land en eftir skamma stund kom í ljós að tveir höfðu gleymst í sjónum.
RÚV sagði frá þessu í gær en að sögn lögreglunnar á Blönduósi var mikið hvassviðri þar sem mennirnir voru og því rak þá um sjómílu frá staðnum þar sem sýningin fór fram. Verið var að vinna í að ræsa út þyrlu til að leita að mönnunum þegar þeir fundust.
Annar mannanna var þrekaður þegar þeim var bjargað. Galli hans hafði lekið og var líkamshiti hans kominn niður í 33 gráður þegar hann mældur í sjúkrabílnum. Mennirnir voru fluttir á heilsugæslustöðina á Hvammstanga til aðhlynningar. Vakthafandi læknir ákvað leggja þann sem ofkældist inn en hinn fékk að fara eftir skoðun.
frettir@ruv.is