Björn Anton æfir í Danmörku

Björn Anton Guðmundsson, einn efnilegasti leikmaður Tindastóls er farinn til Danmerkur þar sem hann mun æfa með danska liðinu Vejle í um vikutíma.  Björn Anton átti frábært sumar með m.fl. Tindastóls og eins með 2.fl. félagsins þar sem hann var fyrirliði og var valinn besti leikmaður flokksins.

 

Björn Anton er fæddur árið 1993 og lék alls 16 leiki með m.fl. Tindastóls í sumar.

Björn Anton fór út ásamt þjálfara sínum Halldóri Jóni Sigurðssyni.

Fyrir þá sem þurfa að glöggva sig betur á kappanum er hann sonur Guðmundar Svavarssonar frá Lyngholti og Kristjönu Jónsdóttur aðalbókara hjá KS.

/Tindastóll.is

Fleiri fréttir