Björn Margeirsson sigraði í 800m á RIG
Björn Margeirsson UMSS sigraði í 800m hlaupi á Reykjavíkurleikunum. Hann hljóp á mjög góðum tíma 1:53,72 mín. Jóhann Björn Sigurbjörnsson bætti sig verulega í 60m hlaupi, hljóp á 7,25sek en átti best 7,45sek áður og endaði í 8.sæti.
Frá UMSS kepptu þau Björn Margeirsson, Fríða Ísabel Friðriksdóttir, Guðrún Ósk Gestsdóttir, Jóhann Björn Sigurbjörnsson og Þorgerður Bettína Friðriksdóttir. Systurnar úr Vestur Húnavatnssýslu Guðrún Gróa og Helga Margrét Þorsteinsdætur kepptu einnig en sú fyrrnefnda keppir fyrir FH en hin fyrir Ármann.
Fríða Ísabel Friðriksdóttir náði 6. sætinu í 800 metra hlaupi og varð 4. í hástökki, stökk 1,55m en þar sigraði Helga Margrét Þorsteinsdóttir með stökk upp á 1,73m. Helga varð 2. Í 800m hlaupi með tímann 2:12,85 og Guðrún Gróa systir hennar varð 4. í kúluvarpi, kastaði kúlunni 12,48m.
Úrslit má nálgast HÉR