Blóðsöfnun í næstu viku
Blóðbankinn verður með blóðsöfnun á Sauðárkróki og á Blönduósi í næstu viku. Mikill skortur hefur verið á blóði hjá Blóðbankanum og á Facebooksíðu bankans í gær kemur fram að skortur er á blóði í öllum blóðflokkum, þó sérstaklega O mínus. Því er mikilvægt að sem flestir gefi blóð.
Bíllinn verður á planinu við Skagfirðingabúð þriðjudaginn 2. október frá klukkan 12:00-17:00 og á miðvikudag 3. október frá klukkan 9:00-11:30 og á planinu hjá N1 á Blönduósi miðvikudaginn 3. október frá klukkan 14:00-17:00.
Traust og örugg blóðgjöf byggir á heilbrigðum blóðgjöfum. Gott heilsufar er því forsenda blóðgjafar og mikilvægt að kynna sér reglur sem gilda varðandi blóðgjafir. Nánari upplýsingar má finna á vef Blóðbankans.