Blómstrandi hamingjudagar á Hótel Náttúru til styrktar Magga og fjölskyldu
Laugardaginn 13. ágúst gefst tækifæri til að eiga yndislegan dag í góðum og skemmtilegum félagsskap, ásamt því að styrkja gott málefni. Ágóðinn af Blómstrandi hamingjudögum rennur til Magnúsar G. Jóhannessonar og fjölskyldu hans. Magnús varð fyrir mænuskaða í vinnuslysi á Sauðárkróki þann 7. júní síðastliðinn.
Magnús vann sem bifvélavirki og lenti í því áfalli að fá þunga vinnuvél á sig, sem olli því að hann er lamaður fyrir neðan mitti. Þetta var mikið áfall fyrir hann og fjölskyldu hans, en hann á 3 börn með eiginkonu sinni Sigrúnu Fossberg Arnardóttur. Í kjölfar slyssins hefur fjölskyldan þurft að flytja tímabundið til höfuðborgarinnar þar sem Magnús er í endurhæfingu. En þau hafa undanfarnar vikur átt heima á þremur stöðum, og hafa vegna slyssins þurft að selja húsnæði sitt á Sauðárkróki. Þar sem það húsnæði hentar ekki þeirra aðstæðum meir. Þessi litla fjölskylda þarf á stuðningi allra að halda.
Hólmfríður Rós Rúnarsdóttir starfar sem félagsráðgjafi og er blómadropaþerapisti. Hólmfríður, eða Fríða Rós eins og hún er kölluð, fékk þessa fallegu hugmynd þegar hún var á leiðinni til Hveragerðis í þeim tilgangi að gista á Hótel Náttúru og njóta fallegrar stundar með móður sinni. Fríðu langaði til að láta gott af sér leiða og fékk þá hugljómun að styrkja gott málefni á Hótel Náttúru og veita þeim sem standa frammi fyrir erfiðleikum stuðning. Fríða hafði þá stuttu áður farið á fyrirlestur hjá Siggu Kling – Orð eru álög – og þá fóru fallegir hlutir að gerast. Fríða ræddi við Inga Þór, hótelstjóra Hótel Náttúru, sem tók svona ljómandi vel á móti fallegri hugsjón. Fríða hafði samband við Siggu Kling og fleiri heilara og andlega ferðalanga, sem allir tóku vel á móti þessu þarfa og verðuga málefni til að styrkja Magnús og fjölskyldu hans.
Þann 13. ágúst verður í boði á Hótel Náttúru heill dagur af heilun og yndisleika. Þar sem boðið verður uppá Tai Chi leikfimi, Yoga, hugleiðslu og fyrirlestra. Það kostar einungis 5000 kr. að vera með, og mun sá peningur renna beint til Magnúsar og fjölskyldu hans. Þeir sem vilja gista á Hótel Nátturu greiða aðeins 6000 kr. og fá yndislegan svefn fyrir vikið – innifalið í gistingu er morgunmatur, aðgangur að baðhúsi og sundlaugum. Gistiverð rennur einnig óskert í söfnunina. Þetta verður yndislegur dagur á þessum fallega stað á Hótel Náttúru í Hveragerði. Um að gera að styrkja gott málefni og fá í leiðinni frið og ljós í hjartað.
Fólkið sem tekur þátt:
Bræðurnir Beggi og Tolli Morthens hafa iðkað Tíbetskan Búddhisma um árabil ásamt hugleiðslu með áherslu á núvitundina. Þeir fóru saman til Nepal og Tibet í pílagrímsferð að fjallinu helga Kailash og hinu helga vatni Manasorova. Í kjölfarið af þessu var verslunin Kailash opnuð í Hafnarfirði og sérhæfir sig í fatnaði, tónlist, talnaböndum, reykelsum, líkneskjum og fleiru tengdu andllegu ferðalagi. Munu þeir koma og vera með kynningu á Tai Chi leikfimi og hugleiðslu. Þeir munu einnig vera með vörur til sölu úr Kailash og mun 30% af söluverði renna til söfnunarinnar.
Sigríður Klingenberg kemur eins og henni einni er lagið og verður með yndislegan fyrirlestur „Orð eru álög“.
Unnur Arndísardóttir tónlistarkona, tónaheilari, yogakennari og blómadropaþerapisti mun leiða ljúfan yogatíma og hugleiðslu, og blanda blómadropa. Unnur útskrifaðist sem yogakennari frá Jóga- og blómadropaskóla Kristbjargar í október 2010. En hún kennir yoga í heimabæ sínum Eyrarbakka. Unnur lærði um FES blómadropana hjá Stefaníu Ólafsdóttur í Nýjalandi, og blandar undursamlegar blöndur fyrir áhugasama.
Dagskráin er eftirfarandi:
Blómstrandi hamingjudagar á Hótel Náttúru.
Laugardaginn 13. Ágúst 2011
Verð: 5000. kr. (rennur óskert til Magnúsar)
Kl: 12:30 - 13 Mæting og kynning
Kl: 13 - 14 Tai Chi leikfimi og hugleiðsla með Bergþóri og Tolla Morthens.
Kl: 14 - 15:30 Sigríður Klingenberg verður með skemmtun og frábæran boðskap –orð eru álög - sem mun breyta þínu hugarfari til hins betra!
Kl: 15:30 - 16 Blómadropakynning. Hólmfríður Rós, ráðgjafi og blómadropatherapisti og Unnur Arndísardóttir tónaheilari, yogakennari og blómadropaþerapisti kynna blómadropa frá FES. Blanda svo blómadropa fyrir þá sem vilja.
Kl: 16 - 17 Kaffi og með því.
Jón Víðis töframaður verður með töfrabrögð fyrir börnin!
Kl: 17:15 - 18:15 Yogatími og hugleiðsla. Unnur Arndísardóttir leiðir mjúkan og ljúfan yogatíma sem leiðir okkur að friðnum hið innra.
Kl: 18:30 Matur fyrir þá sem vilja nærast í góðum félagsskap, tveir fyrir einn tilboð þennan dag.
Þeir sem vilja gista á Hótel Nátturu greiða aðeins 6000. kr. og fá yndislegan svefn fyrir vikið, innifalið í gistingu er morgunmatur, aðgangur að baðhúsi og sundlaugum. Gistiverð rennur einnig óskert í söfnunina
Þeir sem vilja styrkja gott málefni geta einnig lagt inná styrktarreikning Magnúsar og fjölskyldu 0161-15-550279 kt: 110468-3429
Bókanir eru hjá Hótel Náttúru – s. 4830300 eða í netfangið info@hotspringshotel.is
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Rós Rúnarsdóttir í síma 842 0949 eða fridarunars@gmail.com