Blússandi byr í seglum Stólastúlkna
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
10.02.2014
kl. 10.03
Kvennalið Tindastóls bauð uppá frábæra skemmtun í Varmahlíð á laugardaginn er þær tóku á móti Grindavík b í 1. deild kvenna í körfuboltanum. Spiluðu stelpurnar eins og englar allan leikinn og sigruðu af öryggi 65-49.
Stólastelpurnar voru skrefinu á undan þeim gulklæddu frá fyrstu mínútu og uppskáru frábæran liðsheildarsigur.
Á heimasíðu Tindastóls segir að ótrúlega gaman sé að sjá hve margir eru að mæta á leikina hjá stelpunum og styðja vel við bakið á þeim.
Lið Tindastóls trónir nú efst í 1 deildinni ásamt liðum Breiðabliks og Stjörnunnar en Blikar eiga einn leik til góða.
Stigaskor leiksins: Tas 22, Þóranna 16, Bríet 13, Linda 8, Ísabella 4 og Erna 2.