Boðið til rússneskrar kvikmyndasýningar í Króksbíói í kvöld
Kvikmyndin Battalion verður sýnd í Króksbíó á Sauðárkróki í kvöld í tengslum við rússneska kvikmyndadaga, sem haldnir er á Íslandi þessa dagana, í samstarfi við Bíó Paradís. Eftir sýningu myndarinnar mun einn af framleiðendum myndarinnar, Igor Ugolnikov , svara spurningum úr sal en hann er sérlegur gestur kvikmyndadaganna.
„Þetta er í þriðja sinn sem við höldum þessa kvikmyndaviku, þess vegna köllum við hana Þriðju rússnesku kvikmyndavikuna á Íslandi. Fyrir utan Reykjavík sýnum við á nokkrum stöðum á landsbyggðinni, í fyrra fórum við til Egilsstaða og Seyðisfjarðar en að þessu sinni til Ísafjarðar og Sauðárkróks,“ sagði Artem Bogomolov hjá Rússneska sendiráðinu á Íslandi í samtali við Feyki.
„Myndirnar sem eru til sýningar eru mjög ólíkar og veita innsýn inn í mismunandi svæði Rússlands. Markmiðið með þessari kvikmyndaviku er að kynna rússneska kvikmyndagerð fyrir Íslendingum til að auka þekkingu þeirra á landi okkar og þjóð, að sama skapi til þess að styrkja menningarleg tengsl á milli landa okkar,“ sagði hann ennfremur.
Battalion fjallar um fyrstu rússnesku dauðasveitina skipuð konum sem komið var á fót árið 1917, í fyrri heimstyrjöldinni. Nánari upplýsingar á finna á vef Bíó Paradísar. Myndin er sýnd með enskum texta.