Bolla bolla 6000 bollur í Sauðárkróksbakaríi

Það var handagangur í öskjunni í Sauðárkróksbakaríi í morgun þegar allt starfsfólk bakarísins var á hlaupum við að klára pantanir og fylla búðina af girnilegum rjómabollum nánast af öllum stærðum og gerðum. Feykir.is laumaði sér bakvið og hitti sveittan bakara með myndarlega mottu en Róbert hefur staðið vaktina frá því á miðvikudag með stuttum hléum. Sjálfur hefur hann þó ekki borðað nema um 10 – 12 bollur sem hann segir lítið.

„Þetta er stór dagur hjá okkur og við byrjum eins og áður alltaf á miðvikudeginum fyrir bolludag með að bjóða upp á smakk og síðan smá eykst úrvalið og álagið fram á sjálfan bolludaginn,“ segir Róbert.

Sjálfur borðar hann helst púnsbollur en viðurkennir að vatnsdeigsbollurnar verði þó alltaf sterkari og sterkari í sínum huga.

Róbert og starfsfólk hans bakaði um 4000 gerbollur og 2000 vatnsdeigsbollur fyrir bolludaginn og má því gera ráð fyrir því að allir ættu að geta fengið bollur og jafnvel margar bollur. Enda um að gera að stækka magamálið fyrir sprengidaginn sem er á morgun.

Fleiri fréttir