Borce hættur
Borce Ilievski þjálfari meistaraflokks Tindastóls í körfunni sagði af sér eftir leik liðsins gegn Fjölni í gærkvöldi. Þetta var þriðji leikur liðsins í Expressdeildinni og vermir það nú botn deildarinnar vinningslausir.
Að sögn Geirs Eyjólfssonar er eftirsjá að góðum manni en hann hafi verið óánægður með árangur sinn og liðsins og tekið þessa ákvörðun sjálfur. Karl Jónsson hjá unglingráði bíst við því að Borse haldi áfram með þjálfun og uppbyggingu yngriflokkanna enda sé hann að gera þar frábæra hluti.