Borce kveður
Á fundi sínum í gær þriðjudaginn 25. október fjallaði unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls um þá nýju stöðu sem komin er í þjálfaramálum félagsins, eftir að Borce Ilievski yfirþjálfari sagði starfi sínu lausu sem þjálfari karlaliðsins í síðustu viku. Á Tindastóll.is segir að uppsögnin hafi kippt fótum undan forsendum þeim sem lágu til grundvallar samningi unglingaráðs við Borce og hefur ráðið ekki fjárhagslegt bolmagn til að viðhalda því starfssambandi sem áður var, eftir ítarlega skoðun á þeim málum.
Borce er því þakkað það gríðargóða starf sem hann hefur unnið á vegum unglingaráðs og er honum óskað velfarnaðar í framtíðinni.
Við flokkum Borce taka þeir Bárður Eyþórsson sem mun taka við þjálfun drengjaflokks, Kári Marísson mun taka við þjálfun 9. flokks drengja og Karl Jónsson tekur við þjálfun 8. flokks drengja. Eitthvað þarf örlítið að hreyfa við æfingatöflum hjá 9. flokki og mun Kári þjálfari hafa þau mál í sinni hendi.
Þá segir á Tindastóll.is að Borce Ilievski vilji koma kærum kveðjum til iðkenda, foreldra og forsvarsmanna körfuknattleiksdeildar og segir að sér þykir leitt að geta ekki klárað sinn samning við félagið. Hann óskar iðkendum velfarnaðar, en efniviðinn segir hann nægan hjá félaginu til framtíðar litið og biður þá um að hlusta vel á þjálfarana sína.