Breyting á aðalskipulagi 2002-2014 og deiliskipulagi austan Norðurbrautar á Hvammstanga
Tillaga um breytingu á aðalskipulagi 2002-2014 og deiliskipulag austan Norðurbrautar á Hvammstanga í Húnaþingi vestra var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 12. janúar sl.
Tillagan var auglýst þann 19. október sl. og athugasemdafrestur rann út þann 30. nóvember. Samkvæmt tilkynningu frá sveitarfélaginu Húnaþingi vestra bárust fimm athugasemda bréf frá þremur aðilum; þrjú vegna deiliskipulagstillögunnar, eitt sem var bæði um aðalskipulagstillöguna og deiliskipulagstillöguna og eitt um aðalskipulagstillöguna. Þeim sem gerðu athugasemdir hefur verið svarað með formlegum hætti.
Nánari upplýsingar um afgreiðslu þessa skipulagsmáls veitir Ólafur H. Stefánsson, forstöðumaður tæknideildar Húnaþings vestra í síma 455 2400.