Breytingar á aðalskipulagi 2009 - 2021

Tvær tillögur að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 voru samþykktar á fundi sveitastjórnar þann 13. maí síðastliðin. Það eru Gönguskarðsárvirkjun, aðrennsligöng og nýtt stöðvarhús og Deplar í Austur-Fljótum, landbúnaðarsvæði verður verslunar- og þjónustusvæði. Þetta kemur fram á heimasíðu sveitarfélagsins. 

Frá 10. mars til 29. apríl síðastliðinn voru tillögurnar auglýstar á heimasíðu sveitarfélagsins og víðar og þær athugasemdir sem bárust gáfu ekki tilefni til breytinga á þeim. Þær hafa nú verið sendar til Skipulagsstofnunar til staðfestingar. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er fólki bent á að hafa samband við Jón Örn Berndsen byggingarfulltrúa sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir