Breytingar á skilyrðum um byggðakvóta

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt auglýsingu í Stjórnartíðindum þar sem staðfest eru sérstök skilyrði vegna úthlutunar byggðakvóta í Sveitarfélaginu Skagafirði. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar frá fyrra ári og er umsóknarfrestur um byggðakvóta til 24. janúar næstkomandi.

Ákvæði reglugerðar nr. 665 frá 10. júlí 2013 gilda um úthlutun byggðakvóta Sauðárkróks og Hofsóss með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a) Nýtt ákvæði í 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður 5. mgr. svohljóðandi: Hámarksúthlutun til fiskiskipa yfir 50 brúttótonnum, af því aflamarki sem fallið hefur innan viðkomandi byggðarlags, verður 6 þorskígildistonn.

b) Ákvæði 1. og 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa, þeim afla sem telja á til byggðakvóta, í því byggðarlagi sem byggða­kvótinn tilheyrir, til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2012 til 31. ágúst 2013. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, að lágmarki 88% af magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari.

Í kjölfarið hefur Fiskistofa auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð. Umsóknir, tilheyrandi samninga og frekari upplýsingar má finna á vef Fiskistofu með því að smella hér.

Fleiri fréttir