Breytingar á stjórnskipulagi og skipuriti Húnaþings vestra samþykktar
Miklar breytingar eru í vændum á stjórnskipulagi og skipuriti Húnaþings vestra en sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær að ráðist verði í breytingar í samræmi við tillögur starfshóps um samþykktir og stjórnsýslu sameinaðs sveitarfélags Bæjarhrepps og Húnaþings vestra og samantekt og tillögur KPMG.
Helstu tillögurnar samkvæmt fundargerð eru:
Lagt er til að Menningar- og tómstundaráð verði lagt niður. Menningarmál verði hjá byggðarráði. Íþrótta- og tómstundamál verði hjá fræðsluráði.
Lagt er til að þjónustusvið verði tvö. Annarsvegar Fjölskyldusvið og hins vegar Framkvæmda- og umhverfissvið. Stoðsvið verði eitt, Fjármála- og stjórnsýslusvið.
Lagt er til að myndað verði fjögurra manna framkvæmdaráð. Sveitarstjóri verði æðsti yfirmaður ráðsins. Auk hans sitja í ráðinu sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sviðstjóri fjölskyldusviðs og sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs.
Lagt er til að íþrótta- og tómstundamál falli undir verksvið fjölskyldusviðs. Menningarmál falli beint undir sveitarstjóra og byggðarráð. Atvinnumál falli beint undir sveitarstjóra og byggðarráð.
Lagt er til að sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs uppfylli skilyrði til að geta sinnt störfum skipulags- og byggingarfulltrúa.
Lagt er til að hlutverk þjónustumiðstöðvar (áhaldahúss) og eignasjóðs verði samþætt og einn rekstrarstjóri verði yfir báðum verkefnum.
Lagt er til að starf íþrótta- og tómstundafulltrúa færist undir fjölskyldusvið.
Lagt er til að starf forstöðumanns bóka- og skjalasafns færist undir fjármála- og stjórnsýslusvið.
Lagt er til að hafnarvarsla færist undir verksvið þjónustumiðstöðvar (áhaldahúss).
Lagt er til að málefni slökkviliðs falli stjórnskipulega undir framkvæmda- og umhverfissvið. Fagleg málefni eru áfram á ábyrgð slökkviliðsstjóra í samræmi við lög.
Lagt er til að nýtt stjórnskipulag og skipurit taki gildi þann 1. apríl 2013.
Samþykkt var að fela sveitarstjóra að auglýsa stöður sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og rekstrarstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs lausar til umsóknar.
Einnig var starf verkstjóra áhaldahúss í núverandi mynd lagt niður og sveitarstjóra falið að segja Guðmundi Erlendssyni, verkstjóra áhaldahúss upp störfum með starfslokum þann 25. janúar nk. „Sveitarstjórn Húnaþings vestra vill þakka Guðmundi Erlendssyni fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins á liðnum árum,“ segir loks í fundargerð.