Breyttur opnunartími sundlauga í Skagafirði

Opnunartími sundlauganna  í Skagafirði hefur tekið breytingum frá og með gærdeginum en við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012 var tekin sú pólitíska ákvörðun að hagræða í rekstri sundlauga með því að stytta opnunartíma yfir vetrarmánuðina, lækka launakostnað, hækka tekjur og reyna að koma á meira samstarfi milli íþróttamannvirkja. Ekki skyldi þó koma til uppsagna en nýta það svigrúm sem skapaðist ef starfsfólk hætti eða færi í leyfi. 

Samkvæmt upplýsingum frá Frístundasviði er launakostnaður vegna sundlauganna ársins áætlaður tæpum 18 milljónum krónum lægri en raunin varð  á síðasta ári. Í greinargerð sem gerð var um rekstur sundlauganna segir að reynt verður að ná fram hagræðingu í rekstri með breyttum opnunartíma sem og að nýta þann mannafla sem starfar í mannvirkjunum á þeim tímum sem eru að færa laugunum mestar tekjurnar en einnig að geta markaðssett laugarnar á þann hátt að aðsókn í þær aukist stórkostlega því auka þarf tekjurnar að minnsta kosti um 5 milljónir frá síðasta ári eigi ramminn að halda og áætlunin að ganga upp.  Til þess að ná því markmiði þarf að hafa sterka stjórn á rekstrinum og getu til að sjá sóknarfæri.

Heildarlaunakostnaður í sundlaugunum þremur nam rúmum 70 milljónum króna á síðasta ári, sem varð  13,7 milljónum krónum meiri en áætlað var. (Skr- 7,0, Hofsós 3,4 , Varmahlíð 3,2)

Tekjur lauganna voru einnig undir áætlunum og munar þar alls um þremur og hálfri milljón króna.  Má segja að slakur júnímánuður sem rekja má til  óhagstæðs veðurfars og ofáætlun í tekjum af landsmóti hestamanna hafi ráðið þar mestu.

Heildaraðsókn  í laugarnar á síðast ári voru 38492 gestir, sem gerir 110 að meðaltali á dag. Opið var að meðaltali 350 daga á árinu í tæpa 10 þúsund klukkutíma.  Að teknu tilliti til heildar fjölda klukkustunda sem opið var eru tæplega 4 að koma í laugarnar til samans hvern opinn klukkutíma, eða 1,3 í hverja laug hverja klukkustund.

Komið hefur í ljós að gestafjöldi hefur ekki breyst þó afgreiðslutíminn breytist, aðsóknin dreifist aðeins yfir lengri tíma, segir í greinargerðinni og kom það glögglega í ljós á Hofsósi þegar ákveðið var að lengja kvöldopnunina um klukkutíma á dag, opna kl. 16.15 í stað 17.15 eins og fyrst var, að aðsóknin varð ekki meiri.

Með breytingunum er aðeins lítillega verið að skerða heildarafgreiðslustundir lauganna, þó ekki Sauðárkrókslaug, enda hefur hún jafnasta aðsókn allt árið.  Þar verður opið í 13,5 tíma virka daga í stað 11,25 síðustu  2 vetur.  Skornar eru 45 mínútur aftan af daglegri opnun þar. En skv.talningunni í fyrra voru að jafnaði að koma  7 til 9 gestir þennan síðasta klukkutíma en aðalþunginn í lauginni er frá klukkan 16-20  en þá koma að meðaltali 20 á hvern klukkutíma, lang flestir milli klukkan 16 og 17.

Ekki er verið að breyta opnunartíma sundlauganna yfir sumartímann.

Breytingar á vetraropnun eru:

Sundlaug Skr.
Var opin: 06.50-13 og 16-21 – lau: 10-17 , sunn: 10-16
Verður opin: 06.50-20.15  - lau og sunn: 10-16

Sundl. Hofsósi:
Var opin: 
07.05-13.05 og 16.15-20.15
Verður opin: 07.05-13.05 og 17.15-20.15

Sundlaug Varmahlíð:
Var opin: 
Mán.-fimmtud. 14-21- lau 10-15 Lokað föstudaga og sunnudaga
Verður opin: Mán-fimmtud. 09-20 ( íþróttahúsið til kl. 21.00 )

  • Föstud. 09-14
  • Laug 10-15
  • Lokað sunnudaga

Gjaldskrá 2012 Sundlaugar:

  • Börn að 18 ára aldri búsett í Sveitarfélaginu frítt
  • Eldri borgara búsettir í Sveitarfélaginu frítt
  • Öryrkjar búsettir í sveitarfélaginu frítt
  • Önnur börn yngri en 16 ára kr. 200
  • 10 miða kort barna kr. 1.500
  • Aðrir öryrkjar kr. 200
  • Fullorðnir kr. 500
  • 10 miða kort fullorðinna kr. 4.000
  • 30 miða kort fullorðinna kr. 7.500
  • Árskort kr. 28.000
  • Gufubað innifalið í aðgangi
  • Infra-rauð sauna innifalið í aðgangi
  • Sundföt kr. 400
  • Handklæði kr. 400

Fleiri fréttir