Brostið á mikið stuð á Sauðárkróki

Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin fimmta árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 14. - 16. ágúst 2014. „Eftir skort á rafmagni í morgun og frameftir degi er nú brostið á mikið stuð á Sauðárkróki. Rafmagnsguðirnir brostuð við okkur og við erum þess vegna hætt við að hætta við sólóistakvöldið,“ segir í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum Tónlistarhátíðarinnar Gærunnar 2014 en þau höfðu sent frá sér tilkynningu fyrr í dag að aflýsa þyrfti sólóistakvöldinu vegna rafmagsleysisins á Sauðárkróki. 

Tónlistarhátíðin hefst því með miklum látum á slaginu 21:00 í kvöld á skemmtistaðnum Mælifelli. Húsið opnar kl. 20:00 og það kostar 1.000kr inn. Kynnir kvöldsins verður sjónvarpskonan Hilda Jana Gísladóttir.

Það eru rúmlega 100 hæfileikaríkir tónlistarmenn sem skipa þau 24 tónlistaratriði sem koma fram á hátíðinni. Þar á meðal eru heitustu nöfn dagsins í dag ásamt stærstu nöfnum morgundagsins. Sauðárkrókur iðar af lífi þegar Tónlistarhátíðin Gæran stendur yfir og er þetta upplifun sem engin má missa af!

Dagskrá hátíðarinnar:

Fimmtudagur:

Fúsi Ben & Vordísin
Val-kirja
Joe Dubius
Bergmál
Hlynur Ben

Föstudagur:

20:00 Una Stef
20:30 Sjálfsprottin Spévísi
21:00 Klassart
21:30 Johnny and the rest
22:00 Boogie Trouble
22:30 The Bangoura Band
23:00 Myrká
23:30 Himbrim
24:00 Úlfur Úlfur

Laugardagur:

20:00 Sunny Side Road
20:30 Kiriyama family
21:00 Skúli Mennski
21:30 Beebee and the bluebirds
22:00 Kvika
22:30 Rúnar Þóris
23:00 Nykur
23:30 Reykjavíkurdætur
00:00 Dimma
00:30 Mafama

Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkustund síðar. Minnt á að það er 18 ára aldurstakmark á hátíðina en yngri tónlistarunnendur eru velkomnir í fylgd með foreldri/forráðamanni, 12 ára og yngri fá frítt inn.

Miðasala er hafin á midi.is og í Gestastofu Sútarans á Sauðárkróki og kostar einungis 6.500 kr. inn á hátíðina. Hægt er að kaupa sig inn á stakt kvöld (fös&lau) á staðnum á 4.000 kr.

Fleiri fréttir