Bubbi á Hvammstanga í kvöld
Bubbi heldur verður með tónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga í kvöld. Hann er á tónleikaferð um landið sem dregur nafn sitt af titli nýjustu geislaplötu hans „Ég trúi á þig.“
Á tónleikunum mun Bubbi taka upp kassagítarinn og leika bæði gamalt efni og nýtt auk þess að ræða við áhorfendur um málefni líðandi stundar.
Fram kemur á midi.is að geislaplatan sem Bubbi gaf út sl. sumar hefur fengið frábæra dóma og selst gríðarlega vel.
Miðaverð er 2500 kr. og verður hægt að kaupa miða við innganginn. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30.