Bubbi kemur við á Hvammstanga á tónleikaferð um landið

Bubbi kemur við á Hvammstanga miðvikudaginn 9. nóvember nk. á ferð sinni um landið. Líkt og mörg undanfarin haust mun Bubbi halda af stað með kassagítarinn og leika bæði gamalt efni og nýtt auk þess að ræða við áhorfendur um málefni líðandi stundar.

Fram kemur á midi.is að geislaplatan sem Bubbi gaf út sl. sumar hefur fengið frábæra dóma og selst gríðarlega vel. Tónleikaferðin dregur nafn sitt af titli plötunnar „Ég trúi á þig.“

Tónleikaferðalagið verður á eftirfarandi stöðum:

  • 4. nóvember - Leikskálar Vík í Mýrdal
    5. nóvember - Grindavíkurkirkja
    6. nóvember - Ytri Njarðvíkurkirkja
    8. nóvember - Kollubar Hvanneyri
    9. nóvember - Félagsheimilið Hvammstanga
    13. nóvember - Hlégarði Mosfellsbæ

Miðaverð er 2500 kr. og fer miðasala fram á midi.is og við innganginn. Allir tónleikar hefjast kl 20:30.

 

 

 

Fleiri fréttir