Búið að semja við nýjan rekstraraðila á Sólgörðum
Gengið hefur verið frá samningi um rekstur sundlaugarinnar að Sólgörðum í Fljótum í sumar milli Frístundasviðs og Hrafnhildar Hreinsdóttur að Barði. Hún tekur við lauginni 1. júní og rekur hana fram að skólabyrjun um miðjan ágúst.
Hrafnhildur mun reka laugina í góðu samstarfi við ferðaþjónustuna í héraðinu og aðrar sundlaugar í Skagafirði.
/Skagafjörður.is