"Byggðakvótinnn að hverfa frá Hofsósi"
Grafarós er sjávarútvegsfyrirtæki á Hofsósi sem er í eigu bræðranna Þorgils Heiðars Pálssonar og Jóns Helga Pálssonar. Fyrirtækið hóf starfsemi sumarið 2006 en þeir bræður hafa alla tíð verið viðloðandi sjóinn og fiskinn. Feykir heimsótti fyrirtækið í lok síðasta mánaðar og var eftirfarandi viðtal birt í 21. tbl Feykis.
–Við erum búnir að vera við fiskvinnslu og út á sjó síðan við vorum guttar. Maður náði meira að segja aðeins í endann á verbúðarstemmingunni og Jón bróðir fór á vertíðar í Grindavík og Vestmannaeyjum eins og tíðkaðist þá, segir Þorgils.
Fjölbreytt þjónusta við sjávarútveginn.
Grafarós bíður upp á fjölbreytta þjónustu við sjávarútveginn: -Við erum með löndunarþjónustu fyrir trillurnar sem landa hér á Hofsós. Síðan höfum við verið í að salta grásleppuhrogn, segir Þorgils. Á tímabili var líka verið að flaka en það gekk ekki upp og því var hætt aftur og eru komin uppundir tíu ár síðan síðast var hefðbundin fiskvinnsla á Hofsósi. Auk þess að þjónusta aðrar útgerðir eru þeir bræður sjálfir með trilluna Ásmund. Þrír fastir starfsmenn eru við fyrirtækið og þeim fjórða bætt við þegar mikið er umleikis. Grafarós á í samstarfi við Fiskmarkaðinn á Siglufirði um söluþjónustu, en Fiskmarkaðurinn sér um bókhaldshliðina á henni og segja þeir bræður nánast útilokað að gera út án þess að hafa þá þjónustu á staðnum, ís og löndum og slíkt verði að vera til staðar.
Líf í kringum strandveiðarnar
-Þetta gengur ágætlega, þannig lagað, gengur bara vel. Það eru svona sex til tíu bátar sem landa hjá okkur. Það er svolítið líf í kringum strandveiðarnar, þær blésu svolitlu lífi í þessi litlu þorp, það er 8-10 bátar á strandveiðum núna, segir Þorgils og Jón Helgi bætir við: -Hérna væru t.d. miklu fleiri á strandveiðum ef höfnin væri aðeins betri, það er bara fullt eins og hefur verið. Menn hafa ekki treyst sér til að vera hérna af því það er ekki pláss fyrir þá.
Koma inn á Skagafjörðinn í vissum vindáttum
-Siglfirðingarnir koma hérna ef það er leiðindaveður og landa þá hjá okkur. Í ákveðnum vindáttum, eins og austanáttinni, þá kemur mikið af bátum hérna inn á Skagafjörðinn, segir Þorgils. Fiskurinn er síðan fluttur landleiðina frá Hofsósi og er það Vörumiðlun á Sauðárkróki sem sækir fiskinn daglega í Hofsós og er hann nánast allur fluttur suður í Hafnarfjör en eitthvað fer á Akureyri.
Byggðakvótinn að hverfa frá Hofósi
Aðspurður um byggðakvóta á Hofsósi segir Þorgils: -Jú það hefur verið byggðakvóti hérna en hann er nú bara nánast að hverfa, minnkar alltaf ár frá ári, það er búin að vera veruleg skerðing á honum hérna á Hofsós. Þeir hafa landað honum hérna, við erum með slægingarþjónustu hérna líka, slægjum fiskinn og hann fer í vinnslu hjá Fiskiðjunni. Hann er orðinn svo lítill þessi byggðakvóti að þetta er varla til skiptana fyrir þessa báta hérna.
Þær bræður segjast hóflega bjartsýnir, það hafi fjarað undan þeim þar sem byggðakvótinn sé að hverfa, hann minnkar nú um 15 tonn á ári. -Þegar við vorum að byrja var hann rúm 130 tonn en er núna kominn niður í 45 tonn. Þetta hjálpaði svakalegt til, bætir Jón Helgi við. Núna er aðeins einn bátur á Hofsósi sem á þrjátíu tonna kvóta, annars eru menn að leigja til sín kvóta sem er ekki mjög arðbært, að sögn þeirra bræðra.
Langur vinnudagur
-Við róum aðallega núna, á trillunni. Við förum út svona milli tvo og þrjú á nóttunni og komnir í land þrjú-fjögur á daginn. Þar á eftir löndum við úr hinum bátunum, segir Þorgils og tekur undir að vinnudagarnir geti verið langir, þeim ljúki oft ekki fyrr en sjö átta á kvöldin. Jón Helgi tekur undir að svo sé og segir sex trillur vera á atvinnuveiðum á svæðinu og einhverja fleiri á strandveiðum. Töluverð þjónustu SÉ kringum hvern bát og þeir reyni að kappkosta að veita góða þjónustu og þjónusti bátana m.a. á kvöldin, sem geri aðsóknina enn meiri.