Byggðaráð leggur línurnar fyrir ársþing SSNV

Byggðaráð Húnaþings vestra hefur ákveðið að senda fulltrúa sína með ákveðin erindi á ársþing SSNV sem haldið verður í Reykjaskóla dagana 26. – 27. ágúst. Snúa erindin að þeim verkefnum sem Húnaþing vestra leggur áherslu á í samstarfinu.

Verkefnin eru þessi; „Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt að sameina félags og skólaþjónustu í sveitarfélaginu og með því veita íbúum heildstæða þjónustu. Þar er gert ráð fyrir ráðgjöf við börn og fullorðna í málefnum fatlaðra. Byggðarráð ítrekar beiðni um að stjórn byggðasamlags um málefni fatlaðra greiði sveitarfélaginu fyrir þá þjónustu og geri ráð fyrir því í fjárhagsáætlun 2012.

Í tengslum við Landshlutaáætlun Norðurlands vestra, Ísland 2020 leggur byggðarráð áherslu á að koma á dreifnámi í Húnaþingi vestra og stuðning við lagningu hitaveitu í dreifbýli í Húnaþingi vestra.

Vegna samgönguáætlunar áranna 2011-2014 er áhersluatriði Húnaþings vestra lagningbundins slitlags á Vatnsnesveg og Miðfjarðarveg.“

Fleiri fréttir