Byggðarráð Húnaþings vestra mótmælir lokun á þjónustuskrifstofu VÍS
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra sem haldinn var í gær var samþykkt bókun þar sem ákvörðun VÍS um að loka útibúi fyrirtækisins á Hvammstanga var harðlega mótmælt. Í bókuninni segir að aðgerðir sem þessar bitni verulega á íbúum landsbyggðarinnar sem sífellt þurfi að sækja þjónustu um lengri veg en engin þjónusta frá VÍS verði aðgengileg á atvinnusvæði íbúa Húnaþings vestra eftir lokun útibúsins.
Ennfremur segir: „Ljósleiðaravæðingu landsins er meðal annars ætlað að gera fólki kleift að stunda vinnu sína hvar á landi sem er. Þrátt fyrir þessa mikilvægu tæknibyltingu virðist gæta þess misskilnings hjá stjórnendum stórfyrirtækja að hennar helsta hlutverk sé að safna sem flestu starfsfólki undir sama þak og þá helst á dýrasta stað í höfuðborg landsins, frekar en að gera fólki allstaðar að af landinu kleift að sinna viðkomandi störfum. Erfitt er að sjá að þessi þróun sé viðskiptavinum í vil, enda hefur hvergi komið fram að þessi þróun verði til að lækka iðgjöld þeirra. Byggðarráð hvetur stjórn VÍS til að endurskoða þessa ákvörðun með það að markmiði að viðhalda góðri þjónustu við landsbyggðirnar.“
Er sveitarstjóra Húnaþings vestra falið að segja upp samningum við VÍS fyrir 1. júlí 2019 og jafnframt að leita tilboða í tryggingar hjá þeim tryggingarfélögum sem treysta sér til að þjónusta samfélagið með viðunandi hætti.
Í Viðskiptablaðinu í gær kemur fram að Landsamband íslenskra verzlunarmanna harmar ákvörðun Vátryggingafélags Íslands um að loka átta þjónustuskrifstofum sínum á landsbyggðinni og gerir athugasemdir við að þessar aðgerðir fyrirtækisins skuli fyrst og fremst bitna á landsbyggðinni eins og segir í yfirlýsingu frá sambandinu. Félagið gerir því kröfu um að þessi ákvörðun verði endurskoðuð, því annars megi gera ráð fyrir að margir muni leita annað með viðskipti sín.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.