Byggðasafn Skagfirðinga hlýtur fimm milljónir úr Fornminjasjóði
feykir.is
Skagafjörður
18.03.2015
kl. 15.27
Fornminjasjóður úthlutaði í gær styrkjum til ýmissa verkefna. Sótt var um samtals rúmlega 162 milljónir króna en úthlutað var 40.020.000 kr. Fimm milljónir komu í hlut Byggðasafns Skagfirðinga.
Verkefnin eru þrjú og öll framhaldsverkefni en þau eru eftirfarandi:
- Strandminjar við vestanverðan Skagafjörð. 1. áfangi hlaut 1 milljón
- Skagfirska kirkjurannsóknin, 3. áfangi - uppgröftur kirkjugarðs í Keflavík, Hegranesi og Eyðibyggð og afdalir Skagafjarðar, VIII. áfangi – byggðasögurannsókn hlaut 3 milljónir
- Verkefnið Eyðibyggð og afdalir er unnið í samtarfi við Byggðasögu Skagafjarðar hlaut 1 milljón
Nánar má sjá úthlutanir Fornminjasjóðs á vef Minjastofnunar.
Þá hlaut safnið fær 3 millj. kr. úr Safnasjóði. 1 millj.kr. til reksturs, 1 millj. kr. til munaljósmyndunar og 1 millj. kr. til skráninga f. Tyrfingsstaðaverkefnið.