Byggðasafn Skagfirðinga í BBC

Tökulið frá sjónvarpstöðinni BBC var statt hér á landi í sumar til að taka upp heimildaþátt sem ber vinnuheitið „Leyndarmál víkinganna“. Að sögn Guðnýjar Zoëga hjá fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga fréttu þáttagerðarmenn BBC af byggðasögurannsókn byggðasafnsins í Hegranesi og höfðu samband.

Þættirnir fjalla um bandaríska fornleifafræðinginn Söru Parcak sem sérhæfir sig í notkun gervihnatta mynda til greiningar á fornleifum sem ekki eru greinanlegar ofanjarðar. Þættir um Söru, frá því þegar hún var á ferð um Egyptaland og Grikkland, hafa m.a. verið sýndir í Ríkissjónvarpinu.

Nú skoðar hún staði á norðurslóðum og hvort hægt sé að greina minjar frá Víkingaöld með sömu tækni. Upptökur fóru fram í Keflavík og Ási í Hegranesi, Hofi í Hjaltadal og Kringlumýri í Akrahreppi. Ekki liggur fyrir hvenær þátturinn verður til sýningar ytra.

Fleiri fréttir