Byggðastofnun hagnast um 189 milljónir

Byggðastofnun hagnaðist um 188,9 milljónum króna fyrir árið 2013 og var eiginfjárhlutfall í árslok 16%. Ársreikningur Byggðastofnunar ársins var staðfestur af stjórn stofnunarinnar í gær.

Á heimasíðu Byggðastofnunarinnar kemur fram að hagnaður ársins nam 188,9 milljónum króna, samanborið við 152,8 milljón króna tap á árinu 2012. Skýrist þetta fyrst og fremst með því að 5. júní 2013 staðfesti Hæstiréttur Íslands úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Byggðastofnunar gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hf., þar sem krafa Byggðastofnunar að fjárhæð 271,3 milljónir króna var viðurkennd sem forgangskrafa. Höfðu 238 milljónir króna af þeirri kröfu áður verið afskrifaðar.

Um helstu niðurstöður ársreiknings segir að eiginfjárhlutfall stofnunarinnar skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 16,0% en skal að lágmarki vera 8%. Hreinar vaxtatekjur voru 437,4 milljónir króna eða 43,8% af vaxtatekjum, samanborið við 593,8 milljónir (47,9% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á árinu 2012.

Laun og annar rekstrarkostnaður nam 373,6 milljónum króna samanborið við 312,7 milljónir árið 2012. Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreytingar hlutafjár voru 51,0 milljónir króna en voru 444,9 milljónir 2012.

Eignir námu 14.872 milljónum króna og hafa lækkað um 1.866 milljónir frá árinu 2012.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 11.570 milljónir. Skuldir námu 12.458 milljónum króna og lækkuðu um 2.091 milljón á árinu 2012. Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 22,6 milljónum króna.

Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Stofnunin undirbýr, skipuleggur og fjármagnar verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Byggðastofnun fylgist einnig með þróun byggðar í landinu.

Byggðastofnun vinnur að stefnumótandi byggðaáætlun fyrir allt landið í samráði við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Í áætluninni skal gerð grein fyrir ástandi og horfum í þróun byggðar í landinu og lýsa markmiðum og stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum.

Nánari upplýsingar um ársreikninginn má sjá á heimasíðu Byggðastofnunnar.

 

Fleiri fréttir