Byggðastofnun og atvinnuþróunarfélög skrifuðu undir nýja samstarfssamninga

Fulltrúar Byggðastofnunar og átta atvinnuþróunarfélaga um land allt skrifuðu sl. þriðjudag undir nýja samstarfssamninga til næstu fimm ára. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, var viðstaddur undirritunina og sagði hann það eindreginn vilja ríkisstjórnarinnar að efla byggðamál og tryggja búsetu vítt og breitt um landið.
Á vef Stjórnarráðsins segir að samningarnir byggist á samtali Byggðastofnunar og félaganna á síðastliðnu starfsári. Í nýjum samningum er leitast við að taka mið af breyttu starfsumhverfi félaganna en á liðnum árum hefur hlutverk atvinnuráðgjafarinnar breyst frá því að veita fyrst og fremst einyrkjum og litlum fyrirtækjum rekstrarráðgjöf í það að þjónusta einyrkja, stór og lítil fyrirtæki og sveitarfélög.
Sigurður Ingi sagði þegar sjást í fjárlögum ársins aukin framlög til samgöngumála, heilsugæslustöðva á landsbyggðinni og til menntamála. Fram undan væri gerð fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar sem yrði lögð fram í mars og þar muni einnig sjást enn betur áform ríkisstjórnarinnar um þessi mál sem önnur. Þá sagði ráðherra að meðal verkefna sem tengist sveitarstjórnar- og byggðamálum með beinum í hætti í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar væri að skilgreina hlutverk landshlutasamtaka, styrkja sóknaráætlanir, nýta námslánakerfið og önnur kerfi sem hvata til að setjast að í dreifðum byggðum, ljúka ljósleiðaravæðingu og að innanlandsflug yrði hagkvæmari kostur fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Sagði hann vert að þakka atvinnuþróunarfélögunum fyrir aðkomu þeirra að þeim þætti.
Í ávarpi Aðalsteins Þorsteinssonar, forstjóra Byggðastofnunar, við athöfnina kom m.a. fram að sjálfstæði félaganna væri mikilvægt og að þau lytu ekki boðvaldi Byggðastofnunar eða ríkisins eða einstakra sveitarfélaga. Á hinn bóginn hljóti ríkisvaldið að gera kröfur um að tilteknum reglum og lágmarksviðmiðum sé fylgt um ráðstöfun þess fjár sem það lætur af hendi rakna til verkefna í byggðarlögunum.
Sjá nánar HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.