Byggingarnefnd Árskóla sett á fót
Meirihluti byggðaráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi í gærmorgun að setja á fót byggingarnefnd Árskóla. Samfylkingin styður ekki tillögu um sérstaka bygginganefnd Árskóla. Í bókun þeirra segir; „ Í ljósi þess að fulltrúar nefndarinnar eru þeir sömu og skipa byggðaráð er augljóst að auðveldlega hefði verið hægt að vinna verkefnið innan byggðaráðs og spara þannig kostnað á sama tíma og tryggð hefði verið aðkoma allra flokka að málinu“
Í bókun meirihluta um málið segir; „ Byggingarnefndin skal hafa yfirumsjón með viðhaldi og nýframkvæmdum í skólanum á starfstíma hennar. Í nefndinni skulu sitja þrír sveitarstjórnarfulltrúar, tveir frá meirihluta og einn frá minnihluta. Auk þeirra skulu sitja fundi nefndarinnar, sveitarstjóri, fræðslustjóri, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs og fulltrúi Árskóla. Fullskipa skal í nefndina á byggðarráðsfundi 3. mars 2011. Nefndin heyrir undir byggðarráð og skal reglulega uppfæra byggðarráðið um stöðu verkefnisins."
Lögð fram tillaga um að eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar skipi byggingarnefnd Árskóla:
Bjarni Jónsson, Stefán Vagn Stefánsson og Jón Magnússon.“
Þorsteinn Broddason, áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar, lagði fram tillögu þess efnis að skipuð verði sérstök bygginganefnd Árskóla að byggðaráð fari með yfirumsjón með viðhaldi og nýframkvæmdum í Árskóla. Fræðslustjóri, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs og fulltrúi Árskóla sitji fundi byggðaráðs þegar fjallað er um framkvæmdir við Árskóla. Tillagan var felld en Sigurjón Þórðarson óskaði bókað að hann styddi tillögu Þorsteins.
Þorsteinn Broddason sagði á fundi byggðaráðs. „Meirihluti Vinstri Grænna og Framsóknarflokks sýnir með þessu að hann hefur ekki vilja til að tryggja aðkomu allra flokka að stærri málum sveitarfélagsins."