Byggir Eleven Experience keiluhöll á Knappstöðum í Fljótum?

Deplar í Fljótum. Myndin er tekin í júní í sumar en framkvæmdir eru enn í fullum gangi og reiknað með að lúxushótelið verði opnað í apríl 2016. MYND: ÓAB
Deplar í Fljótum. Myndin er tekin í júní í sumar en framkvæmdir eru enn í fullum gangi og reiknað með að lúxushótelið verði opnað í apríl 2016. MYND: ÓAB

Í Morgunblaðinu í dag er heilmikil umfjöllun um framkvæmdir við lúxusgistihús á Deplum í Fljótum en framkvæmdir þar eru vel á veg komnar. Það er ferðaþjónustufyrirtækið Eleven Experience sem mun reka gistihúsið og er reiknað með að opnað verði í byrjun apríl á næsta ári.

Fram kemur í viðtali við Jennifer Jeffrey, markaðs- og kynningarstjóra Eleven Experience, að sömu fjárfestar eigi jarðirnar Knappstaði og Stóru-Brekku auk Depla. Hún segir að bygging keiluhallar á Knappstöðum sé bara „...ein af mörgum hugmyndum sem hafa komið upp en ekki af neinni alvöru. Keiluhöll er ekkert forgangsverkefni hjá okkur eins og staðan er í dag. Það er aldrei að vita hvað verður þegar fram í sækir.“

Áhugi hefur verið fyrir því hjá eigendum Eleven Experience að kaupa fleiri jarðir í Fljótum og skv. Mogganum hafa verið þreifingar um að kaupa Lund og Helgustaði í Fljótum en Lundur er bærinn sem Guðrún frá Lundi er kennd við. Þá hefur félagið sýnt áhuga á kaupum á gömlu húsunum í Haganesvík. Jennifer staðfestir að frekari jarðakaup í Fljótum hafi verið til skoðunar með það í huga að byggja þar upp sjálfbæran landbúnað, eins og sauðfjár- og nautgriparækt, þar sem gestir geti komið og skoðað sig um og bragðað síðan á þeim afurðum sem framleiddar eru.

Nánari upplýsingar um uppbyggingu og starfsemi Eleven Experience og Orra Vigfússonar í Fljótum er sem fyrr segir að finna í Morgunblaðinu.

Fleiri fréttir