Byrjaði með klukku handa konunni
Í síðasta mánuði lét Steinn Ástvaldsson af störfum eftir 41 árs farsælt starf hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Hann er þó hvergi nærri lagstur með tærnar upp í loft en það segir hann vera það versta sem hægt sé að gera við starfslok því þá er svo erfitt að standa upp aftur. Þess heldur hefur Steini hellt sér í handverkið. „Ef maður hefur ekkert fyrir stafni þá verður maður einfaldlega vitlaus, mér finnst það fullsnemmt,“ sagði hann og hló, þegar blaðamaður Feykis leit við í skúrnum hjá honum á dögunum.
Blaðamaður fékk að skoða hvað Steini hefur verið að fást við undanfarið, jafnframt því sem spjallað var um það eftirminnilegasta frá langri starfsævi hans hjá sveitarfélaginu. Það eru ekki síst fólkið sem Steini hefur kynnst í gegnum árin sem hefur verið honum eftirminnilegt og voru margir dýrðardagar í kringum suma.
Ýmsir trémunir sem Steini hefur gert. Ljósm./BÞ
„Ég var með afskaplega skemmtilegum körlum, uppgjafarsveitamönnum sem komnir voru á áttræðis aldurinn, sem komu hingað í bæinn en þá voru ekki þessar serimóníur að hætta í síðasta lagi sjötugur. Annar þeirra var Arnbjörn Jóhannsson, ættaður frá Krossi í Óslandshlíð og hafði búið hér lengi og hinn hét Bergur Guðmundsson frá Nautabúi. Þeir voru mikið með mér þegar ég var á bílnum að taka ruslið, það var afskaplega gaman að vera með þeim - þetta voru margir dýrðardagar að hafa þessa karla. Þeir voru með pillur hvern við annan og maður gat ekki annað en notið þess,“ rifjar Steini upp og hlær.
Steini er í opnuviðtali í Feyki sem kemur út í dag.